Skjólið fær gjöf

Jón Sigurðsson

Skjólið fær gjöf

Kaupa Í körfu

Félagsmiðstöðin Skjólið, sem er samkomustaður ungs fólks á Blönduósi, fékk fyrir skömmu að gjöf vandað heimabíó. Gjöfin var keypt fyrir tekjur af trúbadorakvöldi sem Veisluþjónustan ehf. og KH hf. á Blönduósi stóðu fyrir á Hótel Blöndu eigi alls fyrir löngu. Krakkarnir í 8., 9. og 10. bekk í Grunnskólanum á Blönduósi veittu þessari gjöf viðtöku og þökkuðu fyrir sig, sum að þjóðlegum sið og kysstu hina örlátu gefendur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar