Brunaútkall

Kristján Kristjánsson

Brunaútkall

Kaupa Í körfu

Slökkvilið Akureyrar var kallað að Samkomuhúsinu skömmu fyrir hádegi í gær, en brunakerfi hússins hafði farið í gang og boð borist til slökkviliðs. Liðið fór á staðinn og kom þá í ljós að reykvél hafði verið sett í gang og þar með hafði kerfið sent út eldboð, en að öðru leyti var allt í stakasta lagi. Leikritið Eldað með Elvis verður frumsýnt í húsinu annað kvöld, föstudagskvöld og höfðu gárungarnir á orði þegar slökkvibílar þustu að Samkomuhúsinu með sírenuvæli, að líkast til hefði eldamennskan farið eitthvað úr böndunum hjá Elvis og félögum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar