Valur - Víkingur 29:22

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - Víkingur 29:22

Kaupa Í körfu

FYRSTI leikur Vals og Víkings í átta liða úrslitum kvenna fór fram að Hlíðarenda í gærkvöldi. Hnífjafnt var fyrstu 45 mínúturnar en þá skildust liðin að, heimasætur skoruðu sjö mörk í röð og gerðu út um leikinn í einni svipan. Sjö marka sigur Valsstúlkna, 29:22, gefur kannski ranga mynd af leiknum en gestirnir áttu slæmar lokamínútur og eiga erfiðan leik fyrir höndum á laugardag þegar liðin mætast öðru sinni. MYNDATEXTI: Gerður Beta Jóhannsdóttir úr liði Vals náði ekki að koma knettinum í mark Víkings í gær enda stóðu Steinunn Þorsteinsdóttir og Anna Árnadóttir vaktina í vörninni af mikilli festu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar