Hilmar Örn Hilmarsson

Hilmar Örn Hilmarsson

Kaupa Í körfu

Það er ekki langt síðan Hilmar Örn Hilmarsson tónlistarmaður ákvað að dusta rykið af verðlaunagripunum sínum og finna þeim verðugan stað á heimilinu. "Ég var með þetta í kössum hist og her en svo ákvað ég í sumar að vera bara montinn og setja þetta upp á hillu á besta stað í stofunni hjá mér," segir hann. Fyrir utan það að eiga tvær Eddur er Hilmar Örn annar tveggja Íslendinga sem hampa Evrópsku kvikmyndaverðlaununum eftirsóttu, Felixnum sem þá var, en þau hlaut Hilmar fyrir tónlistina í kvikmyndinni Börnum náttúrunnar. MYNDATEXTI: Hilmar Örn Hilmarsson: Ákvað nýlega að vera bara montinn og stilla gripunum upp í stofunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar