Snyrtivörur

Snyrtivörur

Kaupa Í körfu

Lífrænar snyrtivörur frá þýska fyrirtækinu Dr. Hauschka hafa á sl. árum notið sívaxandi vinsælda meðal fræga og fallega fólksins, en meðal þeirra sem hrósa vörunum í hástert má nefna Madonnu, Juliu Roberts, leikarahjónin Brad Pitt og Jennifer Aniston, og ofurfyrirsæturnar Kate Moss og Helenu Christiansen. Mikið ber á snyrtivörunum í erlendum glanstímaritum og eru þær nú fáanlegar hér á landi í versluninni Yggdrasil. MYNDATEXTI: Brot úr andlitslínu Dr. Hauschka. Skintonic-andlitsvatn 1.775 kr. Andlitsmjólk 1.446 kr. og Kvædecreme, þykkt andlitsrakakrem, 1.580 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar