Pétur og Aron með aflann

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Pétur og Aron með aflann

Kaupa Í körfu

KROSSFISKAR og krabbar voru meðal þess sem félagarnir Pétur og Aron veiddu í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Þeir náðu að auki í marhnút og lítinn ufsa og voru hinir glöðustu með veiðina, enda ekki á hverjum degi sem jafnfjölbreyttur afli kemur að landi. Dorg er vinsælt í höfnum umhverfis landið og eflaust hefur bróðurpartur karlpeningsins í landinu reynt fyrir sér á einhverri bryggjunni, með misjöfnum árangri þó.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar