Ísland - Slóvakía 33:32

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Ísland - Slóvakía 33:32

Kaupa Í körfu

Þrátt fyrir hrikalega 36:22 útreið gegn Dönum á sunnudaginn brostu stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta í gegnum tárin því fyrir leikinn voru þær búnar að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum Evrópukeppninnar í handknattleik eftir dramatískan 33:32 sigur á Slóvakíu þegar liðin tóku þátt í forkeppni á Seltjarnarnesi um páskana. Áhorfendur létu sig ekki vanta svo það var fullt hús á báða leiki íslenska liðsins og mikil stemning. Myndatexti: Stúlkurnar fagna sigrinum á Slóvakíu, sem tryggði þeim rétt til að taka þátt í lokakeppni Evrópumótsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar