Þjóðminjasafnið

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þjóðminjasafnið

Kaupa Í körfu

Þjóðminjasafnið verður opnað á ný hinn 1. september næstkomandi SAFNHÚS Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu verður opnað 1. september nk. eftir gagngerar breytingar. Búið er að stækka sýningarrými verulega, svo hægt er að hafa sérsýningar sem og ljósmyndasýningar í gangi meðfram viðamikilli grunnsýningu sem á að segja sögu íslensku þjóðarinnar frá landnámi til okkar daga. Gólf í jarðhæð hússins var lækkað og nýtist hæðin nú fyrir kaffihús, safnaverslun, sýningarsal fyrir ljósmyndir, fyrirlestrasal og kennslustofu. Fyrsti safngripurinn, landhelgisbáturinn Ingjaldur, var fluttur inn í húsið í gær, en þá tilkynnti menntamálaráðherra á blaðamannafundi opnunardag safnsins. MYNDATEXTI: Landhelgisbáturinn Ingjaldur var í gær fluttur upp á aðra hæð Safnahússins, en hann er fyrsti safngripurinn sem kemur í endurbætt hús.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar