KA - Fram 52 :48

Kristján Kristjánsson

KA - Fram 52 :48

Kaupa Í körfu

Með gríðarlegri seiglu í lokin og stórleik Stefáns Guðnasonar í markinu tókst KA-mönnum að merja sigur á Fram í framlengdum leik í KA-heimilinu, 30:29. Stefán gerði sér lítið fyrir og varði vítaskot á síðustu sekúndunum en það var fyrst og fremst hann sem bjargaði KA fyrir horn í þessum hnífjafna leik. Framarar voru skrefinu á undan í framlengingunni og hefðu allt eins getað farið með sigur af hólmi en það tókst ekki að þessu sinni og hyggja þeir á hefndir í Safamýrinni. Myndatexti: Stefáni Guðnasyni, markverði KA, var vel fagnað eftir að hann hafði tryggt liði sínu sigur á Fram á Akureyri í gærkvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar