Soname Yangchen

Soname Yangchen

Kaupa Í körfu

DIALOG, sem skrifuð er á Steintrygg, samstarfsverkefni hrynparsins Sigtryggs Baldurssonar og Steingríms Guðmundssonar, er tvímælalaust ein allra besta plata síðasta árs. Hefur þessa fyrstu eiginlegu útgáfutónleika því verið lengi beðið hér á bæ og betra seint en aldrei. Maður hafði náttúrlega vonað að þeir gætu við slíkt tækifæri hóað saman sem flestum af þeim fjölmörgu hæfileikamönnum sem eiga framlag á plötunni en þegar litið er til þess hversu víða að þeir koma - frá Póllandi, Afríku, Hollandi, New York (Sara Guðmundsdóttir er þar búsett) og lengi mætti áfram - þá er svo sem skiljanlegt að ekki hafi færi gefist á því að koma þeim öllum saman á einum tónleikum. En í staðinn brugðu þeir á það ráð að bjóða upp á sárabætur, tíbesku söngkonuna Soname Yangchen og hvílíkar sárabætur!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar