Pawel Bartoszek

©Kristinn Ingvarsson

Pawel Bartoszek

Kaupa Í körfu

Pawel Bartoszek er fæddur 1980 í Poznan í vesturhluta Póllands. Hann var í grunnskóla í Póllandi og á Íslandi, en er í raun dæmigerður Vesturbæingur sem gekk í Melaskóla, Hagaskóla og Menntaskólann í Reykjavík, þaðan sem hann útskrifaðist af eðlisfræðibraut árið 2000. Hann er með B.S. gráðu í eðlifræði frá Háskóla Íslands og er núna í masternámi, auk þess sem hann er stundakennari í Háskólanum á Akureyri. "Ég hef kennt í Hagaskóla og unnið í verkefninu Bráðger börn sem er í samstarfi við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, samtökin Heimili og skóli og HÍ. Ég kenni þar leikjafræði sem hefur verið vel sótt námskeið bæði á þessu misseri og því síðasta," segir hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar