Draumasmiðjan

Draumasmiðjan

Kaupa Í körfu

LEIKRITIÐ Yndislegt kvöld eftir Pál Hersteinsson verður frumsýnt í Iðnó í Reykjavík í dag klukkan 15 en var ekki frumsýnt í gær eins og greint var í blaðinu í gær. Höfundaleikhús Draumasmiðjunnar stendur að sýningunni og er þetta þriðja sýningin á vegum þess. Páll Hersteinsson er prófessor í líffræði við Háskóla Íslands en hann hefur einnig gefið út smásagnasafn og fræðibækur. MYNDATEXTI: Leikararnir Hjalti Rögnvaldsson, Margrét Árnadóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson ásamt leikstjóranum, Sigrúnu Sól Ólafsdóttur, og höfundinum, Páli Hersteinssyni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar