Pálmi Haraldsson

©Sverrir Vilhelmsson

Pálmi Haraldsson

Kaupa Í körfu

Pálmi Haraldsson er maður, sem á allra síðustu misserum hefur orðið mjög umsvifamikill í viðskiptalífinu, en var þar til fyrir skömmu ekki mjög áberandi þó að hann hefði um tíma stundum verið nefndur í fréttum vegna grænmetismáls Samkeppnisstofnunar. Á föstudaginn undirritaði hann kaupsamning vegna kaupa Fengs á Skeljungi og hann hefur á síðustu mánuðum tekið þátt í því með Baugi að kaupa meirihluta í breskri verslanakeðju og í Norðurljósum. Myndatexti: Umsvif Pálma Haraldssonar í viðskiptalífinu hafa vaxið hratt á síðustu misserum. Hann segist hafa mest gaman af að koma inn í fyrirtæki í erfiðum rekstri til að snúa honum við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar