Valur - Stjarnan 23:22

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - Stjarnan 23:22

Kaupa Í körfu

Lítið mátti útaf bregða að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar Stjarnan sótti Valsstúlkur heim í fyrsta leik í undanúrslitum Íslandsmótsins. Valsstúlkur voru lengi að komast í gang, náðu sér síðan á strik en litlu munaði að Garðbæingum tækist að knýja fram úrslit í lokin. Það gekk ekki eftir og Valur vann 23:22 eftir að Berglind Hansdóttir í marki Vals varði á síðustu sekúndu. MYNDATEXTI: Valskonurnar Ágústa Edda Björnsdóttir og Anna M. Guðmundsdóttir reyna að stöðva Stjörnustúlkuna Elísabetu Gunnarsdóttur í leiknum að Hlíðarenda í gærkvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar