Miklubraut 16

Jim Smart

Miklubraut 16

Kaupa Í körfu

Fyrstu framkvæmdir vegna færslu Hringbrautarinnar eru hafnar, en hafist var handa við að rífa húsið við Miklubraut 16 í gær. Til stendur að hin nýja Hringbraut muni liggja þar sem húsið stendur nú. Niðurrif hússins er hluti af undirbúningi færslu Hringbrautar og markar fyrstu skrefin að nýrri legu götunnar undir Bústaðaveginn. Borgin hefur keypt húsin við Miklubraut 16 og 18-20. Húsið við Miklubraut 18-20 verður þó ekki rifið í þessum áfanga, heldur í síðari áfanga, í tengslum við endurbætur á Miklubrautinni og gatnamót við Kringumýrarbraut.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar