Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar opnað

Helgi Jónsson

Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar opnað

Kaupa Í körfu

Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar (LUKOL) var nýlega formlega opnað almenningi með aðgengi á netinu. Verkefnið hefur staðið yfir í rúm tvö ár með söfnun gagna og tengingu við aðra gagnagrunna, s.s. þjóðskrá og fasteignamat. Fór opnunin fram á Brimnes hóteli í Ólafsfirði að viðstöddum starfsmönnum Ólafsfjarðarbæjar, bæjarstjóra og bæjarfulltrúum og starfsmönnum verkfræðistofunnar Hnits sem unnu verkið, auk fjölmargra annarra, s.s. starfsmanna nærliggjandi sveitarfélaga. Myndatexti: Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Hnits, kynnir verkið þegar Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar var formlega opnað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar