Draumur á Jónsmessunótt - Þóra og Hulda Björk

Ásdís Ásgeirsdóttir

Draumur á Jónsmessunótt - Þóra og Hulda Björk

Kaupa Í körfu

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands flytur Draum á Jónsmessunótt eftir Felix Mendelssohn í kvöld kl. 19.30. Einnig er á dagskrá Verklärte nacht eftir Arnold Schönberg. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Fjöldi gesta leggur hljómsveitinni lið á tónleikunum. Valur Freyr Einarsson leikari, verður sögumaður en söngvarar eru þær Þóra Einarsdóttir og Hulda Björk Garðarsdóttir, báðar sópran, sem sjá má á æfingu hér að ofan. Auk þess mun stúlknakórinn Graduale Nobili koma fram undir stjórn Jóns Stefánssonar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar