Mugison

Halldór Sveinbjörnsson

Mugison

Kaupa Í körfu

ÞAÐ hefur auðsýnilega borgað sig fyrir Örn Elías Guðmundsson eða Mugison að standa að einu stykki tónlistarhátíð. Frumburður hans, Lonely Mountain, hefur greinilega tekið kipp í sölu eftir hina vel heppnuðu hátíð, Aldrei fór ég suður, sem haldin var á Ísafirði um páskana. Platan vakti mikla athygli gagnrýnenda þegar hún læddist inn í plötubúðir seint á árinu 2002 og sagði gagnrýnandi þessa blaðs, Árni Matthíasson, hana tvímælalaust eina af betri plötum þess árs. Næst má heyra í Mugison þegar kvikmyndin Niceland kemur fyrir sjónir manna en þar sér hann um tónlistina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar