Borgarstjóri í vorverkum

Sverrir Vilhelmsson

Borgarstjóri í vorverkum

Kaupa Í körfu

VORVERKIN eru mörg og brýn. Á vorin grípur fólk gjarnan sterk löngun til þess að heilsa sumrinu með hreinu húsi. Þórólfur Árnason hóf í gærmorgun árlega vorhreinsun í Reykjavík þegar hann gekk í hreinsun á Högunum ásamt starfsmönnum hverfabækistöðvar Gatnamálastjóra við Njarðargötu, sem kunnu vel að meta röggsemi yfirmannsins, sem þó gaf sér tíma til að eiga spjall við garðeigendur í Vesturbænum. Saman gengu þeir síðan um Hagana, tóku til hendinni og söfnuðu garðaúrgangi og öðru rusli upp á pallbíl.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar