KA - Haukar 33:29

Kristján Kristjánsson

KA - Haukar 33:29

Kaupa Í körfu

KA-MENN stóðu við loforð sitt um að skemmta áhorfendum á heimavelli og sigra Hauka í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Mikil stemmning var í KA-heimilinu og eftir jafna byrjun tóku heimamenn rækilegan fjörkipp undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi seinni hálfleiks. Þessi frábæri kafli skilaði KA 7 marka forystu og það var of stór biti fyrir Hauka að kyngja. Lokatölur urðu 33:29 og ljóst að barist verður til þrautar í oddaleik eins og flestir höfðu búist við. MYNDATEXTI: Ásgeir Örn Hallgrímsson, stórskytta Hauka, var oftar en ekki tekinn föstum tökum af varnarmönnum KA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar