Ivan Falck-Petersen og nagladekkin

Kristján Kristjánsson

Ivan Falck-Petersen og nagladekkin

Kaupa Í körfu

TÍMI nagladekkjanna er liðinn þennan veturinn og nú þurfa ökumenn að vera búnir að skipta yfir á sumardekk. Leyfilegt er að hafa nagladekin undir fram til 15. apríl en ekki er þó amast yfir því þótt slík dekk séu undir bílunum út aprílmánuð. Eftir þann tíma mega ökumenn fara að búast við aðgerðum lögreglu og sekt fyrir að vera á nagladekkjum á "röngum" tíma mun vera 5.000 krónur á hvert dekk. Ivan Falck-Petersen, danskur Grænlendingur, sem búsettur er á Akureyri var að gera að könnun á því í gær hversu margir bílar væru enn á nagladekkjum. Ivan, sem starfar hjá Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar, fór um bílastæði í miðbænum, við FSA og MA og niðurstaða könnunar hans var sú að enn væru um 25% bíla á nagladekkjum MYNDATEXTI: Ivan Falck-Petersen var að gera könnun á því í gær hversu margir ökumenn væru enn með nagladekkin undir bílum sínum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar