Elliðavatn

Jim Smart

Elliðavatn

Kaupa Í körfu

VEIÐI hófst í Elliðavatn í gærmorgun. Björn Ingi Stefánsson á Kríunesi sagði að þeir fyrstu hefðu komið strax klukkan sjö um morguninn. "Það eru hinir trúföstu og tryggu." Nokkuð kalt var í veðri en Björn segir það ekki stoppa þá áhugasömustu þó ekki hafi verið margt um manninn. "Það eru nokkrir sem koma hingað ár eftir ár þegar opnað er fyrir veiði í vatnið og hafa gert í 19-20 ár." Allt útlit er fyrir góða veiði í Elliðavatni í sumar að sögn Björns. Nokkuð vandasamt sé að veiða í vatninu fyrir þá sem ekki þekkja til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar