Jón Ísberg heiðursborgari Blönduóss

Jón Sigurðsson

Jón Ísberg heiðursborgari Blönduóss

Kaupa Í körfu

Bæjarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum þann 20. apríl að gera Jón Ísberg, fyrrverandi sýslumann, að heiðursborgara Blönduóss. Tilnefningin er til komin vegna óeigingjarns starfs Jóns fyrir samfélagið. Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar Blönduóss, og Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri afhentu Jóni áletrað heiðursborgaraskjal í kvöldverðarhófi á laugardagskvöldið á Hótel Blöndu. Í skjalinu stendur "Bæjarstjórn tilnefnir hr. Jón Ísberg fyrrum sýslumann hér með heiðursborgara Blönduósbæjar. Þökkum stórhug, dugnað og áratuga óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins." Frú Þórhildi Ísberg, eiginkonu Jóns, var afhentur blómvöndur og þess jafnframt getið að hún hafi staðið þétt við hlið hans á lífsins leið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar