Laukurinn skorinn

Laukurinn skorinn

Kaupa Í körfu

Grátur og gnístran tanna sem framkallast af því að skera lauk heyrir nú sögunni til, a.m.k. hjá þeim sem hafa orðið sér úti um laukskera á borð við þennan. Skerinn, sem framleiddur er af sænska fyrirtækinu Sagaform, fæst í versluninni Duka í Kringlunni og virkar á þann hátt að afhýddur laukurinn er settur í lokað hólf undir hnífnum og svo er þrýst nokkrum sinnum ofan á stautinn MYNDATEXTI: Sundgleraugu geta komið að góðum notum við laukskurðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar