Jón Jósep Snæbjörnsson

©Kristinn Ingvarsson

Jón Jósep Snæbjörnsson

Kaupa Í körfu

Sagan segir að hér áður fyrr hafi popparar og rokktónlistarmenn haft það fyrir sið að kúra í fleti sínu frameftir degi og sofa úr sér vímuna. Ef til vill gildir þetta enn um suma í þessum bransa, en líklega hefur þetta meinta sukklíferni poppara eitthvað verið orðum aukið? Í poppinu er vissulega misjafn sauður í mörgu fé, eins og í öðrum starfsgreinum, - og tímarnir breytast og mennirnir með. Að minnsta kosti rís Jón Jósep Snæbjörnsson árla úr rekkju og er kominn í ræktina við fyrsta hanagal. Jónsi er heldur ekki neinn venjulegur poppari. Hann er ein skærasta poppstjarna landsins um þessar mundir og störfin hafa hlaðist á hann, langt umfram þessa venjulegu ballspilamennsku. Hann hefur í vetur tekið þátt í söngleiknum Grease við góðar undirtektir og annar söngleikur er í farvatninu, Fame, sem frumsýndur verður í júní MYNDATEXTI: Selma Björnsdóttir leggur Jónsa lífsreglurnar fyrir Eurovision

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar