Valur - ÍR 32-31

Jim Smart

Valur - ÍR 32-31

Kaupa Í körfu

HEIMIR Örn Árnason skaut Valsmönnum í úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn með marki í bráðabana gegn ÍR-ingum í Valsheimilinu í gær. Í gríðarlegum spennutrylli réðust úrslitin í bráðabana eftir tvíframlengdan leik. Í maraþonviðureign fögnuðu Valsmenn sigri, 32:31, og það verða því systrafélögin Valur og Haukar sem heyja einvígi um Íslandsmeistaratitilinn MYNDATEXTI: Markús Máni Michaelsson fyrirliði Vals var sínum mönnum ómetanlegur í sigrinum á ÍR í gær. Markús fagnar hér með stuðningsmönnum Vals.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar