Haukar - KA 33:29

Jim Smart

Haukar - KA 33:29

Kaupa Í körfu

HAUKAR tryggðu sér rétt til að leika í úrslitarimmunni í handknattleik karla með því að leggja KA, 33:29, í oddaleik í gær. Haukar léku frábærlega, sóknarnýting liðsins í fyrri hálfleik var með eindæmum góð og liðið skoraði 20 mörk úr 26 sóknum, sem gerir 77% nýtingu. Þrátt fyrir ágæta kafla réðu norðanmenn ekki við þetta og lái þeim hver sem vill. MYNDATEXTI: Aliaksandr Shamkuts, línumaðurinn sterki í liði Hauka, hefur hér snúið á KA-mennina Arnór Atlason og Þorvald Þorvaldsson og skorar annað tveggja marka sinna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar