Slys við Óshíð

Halldór Sveinbjörnsson

Slys við Óshíð

Kaupa Í körfu

BÍLL með tveimur stúlkum lenti utan vegar í gærdag og valt um 50 metra leið ofan í fjöru á leiðinni um Óshlíð, milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Mikil mildi þykir að ekki fór verr en bílinn er talinn gjörónýtur. Slydduél var þegar atvikið átti sér stað og krapi á veginum. "Ég missti stjórn á bílnum. Það var hálka, ég lenti á brúninni, þar sem bíllinn stoppaði, og svo valt hann ofan í fjöru," segir Lóa Júlía Antonsdóttir, sem var við stýrið, en vinkona hennar, Helga Guðrún Magnúsdóttir, sat í farþegasætinu. MYNDATEXTI: Vinkonurnar Lóa Júlía Antonsdóttir t.v. og Helga Guðrún Magnúsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar