Sniglarnir

Jim Smart

Sniglarnir

Kaupa Í körfu

BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins Sniglar fóru í árlega hópkeyrslu um götur Reykjavíkur 1. maí. Lagt var af stað frá Kaffivagninum á Granda og hjólaður hringur um Reykjavík en 234 bifhjól voru í hópreiðinni að þessu sinni en samtökin eru 20 ára á þessu ári. Henni lauk síðan í Valsheimilinu að Hlíðarenda þar sem hlustað var á stutta hátíðarmessu og boðið upp á grillmáltíð. Tveir félagsmenn Sniglanna voru sæmdir heiðursnafnbót, þær Siv Friðleifsdóttir og Dagrún Jónsdóttir, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir fallegustu hjólin á hjólasýningu Sniglanna í apríl.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar