Drengjakór Kaupmannahafnar

Árni Torfason

Drengjakór Kaupmannahafnar

Kaupa Í körfu

HINN nafnkunni Drengjakór Kaupmannahafnar heldur tónleika í Hallgrímskirkju á föstudag kl. 20. Kórinn kom til landsins síðdegis í gær og fór þá rakleitt í kirkjuna til að líta á aðstæður og kynna sér hljómburðinn. Listvinafélag Hallgrímskirkju tók á móti kórnum í kirkjunni og skipuleggur tónleikana. "Koma þessa konunglega drengjakórs frá Kaupmannahöfn er stór viðburður í íslensku menningarlífi, enda er kórinn talinn einn sá allra besti í sínu fagi í heiminum í dag og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir söng sinn," segir Inga Rós Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Listvinafélagsins. Stjórnandi kórsins er Ebbe Munk en hann tók við stjórnartaumunum árið 1991.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar