Landað í Grundarfirði

Alfons Finnsson

Landað í Grundarfirði

Kaupa Í körfu

Skipverjar á togbátnum Helga SH frá Grundarfirði voru í óða önn að landa afla skipsins í gáma síðastliðinn laugardag. Aflinn sem þeir á Helga voru með var um 45 tonn, mest af ýsu og steinbít, en sá afli fékkst á aðeins 2 sólarhringum. Segja skipverjar að betra verð fáist fyrir ýsu og steinbít á mörkuðum í Englandi en hér heima. En eftir þessa löndum átti Helgi að fara í slipp í skveringu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar