Krílakot

Alfons Finnsson

Krílakot

Kaupa Í körfu

Það ríkti mikill eftirvænting hjá börnunum í leikskólanum Krílakoti þegar starfsfólk leikskólans fór með þau í göngutúr sl. föstudag. Það hafði spurst út meðal barnanna að fyrirhugað væri að gefa þeim ís. Reyndist sá orðrómur á rökum reistur og komu börnin við í söluskála ÓK en þar var Þórður Stefánsson rekstraraðili skálans á fullu að afgreiða ís fyrir börnin. Starfsfólk leikskólans varð ekki útundan og fékk einnig ís í sólskininu. MYNDATEXTI: Börnin í leikskólanum Krílakoti fengu ís í söluskála ÓK í tilefni sumarkomunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar