Flaggað

Steinunn Ásmundsdóttir

Flaggað

Kaupa Í körfu

Þeir eru státnir, kapparnir hjá Malarvinnslunni hf. á Egilsstöðum. Rétt að verða búnir með sjö hæða fjölbýlishús við Hléskóga og tylltu af því tilefni virðulegum gömlum jeppa upp á húsið og flögguðu á honum fána fyrirtækisins. Eru mennirnir að monta sig? Þeir mega það þá víst áreiðanlega því að Malarvinnslan hefur tekið ötulan þátt í uppbyggingunni eystra og víða lagt hönd á plóg. Tuttugu og ein íbúð er í fjölbýlishúsinu og er reiknað með að þær verði tilbúnar til afhendingar í október nk. Fastlega er gert ráð fyrir að jeppinn verði hífður niður fyrir þann tíma.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar