Steve Hubback

©Sverrir Vilhelmsson

Steve Hubback

Kaupa Í körfu

UNDRAVERK nefnist tónlistarhátíð sem haldin verður í Salnum í kvöld í tilefni Kópavogsdaga 2004. Nokkrir af virtustu slagverksleikurum heims koma þar saman fyrir tilstilli slagverksleikarans og hljóðskúlptúristans Steves Hubbacks og flytja tónlist fyrir hljóðskúlptúra og slagverkshljóðfæri, en tónleikarnir hér á landi eru þeir fyrstu sem haldnir eru áður en hópurinn heldur í tónleikaferð um Evrópu. Ásamt Steve og hljómsveit hans, Metal Moves, koma fram á tónleikunum slagverksleikararnir Erik Qvick, Z'ev og Trevor Taylor. MYNDATEXTI: Hljóðskúlptúristinn Steve Hubback spilar á sitt eigið hljóðfæri, en á tónleikunum í kvöld verður jafnframt leikið á Baschet-hljóðskúlptúra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar