Fornbílar í skoðun í Frumherja

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fornbílar í skoðun í Frumherja

Kaupa Í körfu

AÐ fara með bílinn í skoðun gefur í huga fæstra sérstakt tilefni til hátíðahalda. Hjá Fornbílaklúbbnum er þessu öðruvísi farið. Í gær var hinn árlegi skoðunardagur Fornbílaklúbbs Íslands og eigendur gamalla glæsikerra flykktust með þær í skoðun til Frumherja. Fjörukráin í Hafnarfirði var því næst viðkomustaður fornbílaeigenda og að loknum hádegisverði var þrammað um álfabyggðir. Eins og fornbílaeigenda er von og vísa var tekinn rúntur í Firðinum svo að bæjarbúar fengju að berja nýskoðaða eðalvagnana augum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar