Veiðisafnið á Stokkseyri

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Veiðisafnið á Stokkseyri

Kaupa Í körfu

Gíraffi, antilópur, hreindýr, krókódíll, sauðnaut og selur eru meðal uppsettra dýra sem mæta gestum Veiðisafnsins á Stokkseyri. Þar eru einnig sýnd ný og gömul veiðivopn og annað sem tengist veiðimennsku ...... Veiðisafnið, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, verður opnað almenningi um þessa helgi. Þar eru til sýnis uppstoppuð dýr úr þremur heimsálfum, sútuð skinn, veiðivopn af ýmsu tagi og fleira sem lýtur að veiðum á dýrum og fuglum. Megnið af sýningargripunum eru dýr sem eigendur safnsins og veiðimennirnir Páll Reynisson ljósmyndari og kvikmyndatökumaður og Fríða Magnúsdóttir hárgreiðslumeistari hafa aflað innanlands og utan. Einnig eru sýnd dýr sem fengin eru að láni frá Náttúrufræðistofnun Íslands og hefur Veiðisafnið gert fimm ára varðveislusamning við stofnunina um lánsdýrin. MYNDATEXTI: Fríða Magnúsdóttir og Páll Reynisson í Veiðisafninu á Stokkseyri. Í baksýn er Afríkuveggurinn með fjölda afrískra dýra, auk hefðbundinna vopna og veiðitækja Afríkumanna svo sem spjót og skildir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar