Veiðisafnið á Stokkseyri

Ragnar Axelsson

Veiðisafnið á Stokkseyri

Kaupa Í körfu

Gíraffi, antilópur, hreindýr, krókódíll, sauðnaut og selur eru meðal uppsettra dýra sem mæta gestum Veiðisafnsins á Stokkseyri. Þar eru einnig sýnd ný og gömul veiðivopn og annað sem tengist veiðimennsku ...... Veiðisafnið, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, verður opnað almenningi um þessa helgi. Þar eru til sýnis uppstoppuð dýr úr þremur heimsálfum, sútuð skinn, veiðivopn af ýmsu tagi og fleira sem lýtur að veiðum á dýrum og fuglum. Megnið af sýningargripunum eru dýr sem eigendur safnsins og veiðimennirnir Páll Reynisson ljósmyndari og kvikmyndatökumaður og Fríða Magnúsdóttir hárgreiðslumeistari hafa aflað innanlands og utan. Einnig eru sýnd dýr sem fengin eru að láni frá Náttúrufræðistofnun Íslands og hefur Veiðisafnið gert fimm ára varðveislusamning við stofnunina um lánsdýrin. MYNDATEXTI: Heimkynni grímuapans eru í Afríku. Náttúrufræðistofnun Íslands lánaði þetta eintak ásamt fleiri sjaldséðum dýrum sem eru til sýnis í Veiðisafninu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar