Innri Njarðvík

Svanhildur Eiríksdóttir

Innri Njarðvík

Kaupa Í körfu

Unnið er af kappi við að reisa öfluga varnargarða í Njarvíkurhverfunum tveimur enda ágangur sjávar þar mikill. Fyrir skemmstu fór garðurinn neðan við tjörnina í Innri-Njarðvík að taka á sig mynd þaðan sem þessi mynd er tekin. Hægra megin á myndinni má sjá varnargarðana tvo sem ganga út frá hvoru Njarðvíkurhverfanna. Þegar hafið er hvað reiðast sést best að markmiðið með görðunum hefur náðst. Þá er að mestu ládauður sjór ofan við Fitjarnar. Á þeim garði sem er fullkláraður (fjær) stendur steinvera og horfir til hafs. Þetta er ein af verum Áka Gränz málara sem hefur fjölgað ört í Reykjanesbæ að undanförnu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar