Norðurós á Blönduósi

Jón Sigurðsson

Norðurós á Blönduósi

Kaupa Í körfu

Norðurós, Kolka og Rípill umsvifamikil í aukaafurðunum ÞRJÚ fyrirtæki á Norðurlandi vinna nú að framleiðslu afurða úr afskurði, hryggjum og fleiru, eru að breyta úrgangi, sem til skamms tíma var hent, í verðmætar afurðir. Framleiðslan er alls á annað þúsund tonn á ári og veltan um hálfur milljarður króna, en starfsmenn eru 45. Svo stöðug eru aðföngin að það fellur ekki úr vinnu einn einasti dagur á ári vegna hráefnisskorts. Þetta eru fyrirtækin Norðurós á Blönduósi, Kolka, fiskvinnsla á Hofsósi og Rípill á Ólafsfirði. Þau eru í eigu sömu aðila og rekin sem sjálfstæðar einingar en í náinni samvinnu hvert við annað. MYNDATEXTI: Aukaafurðir Starfsfólk þriggja fyrirtækja á Norðurlandi gerir mikið úr litlu. Hér er fólkið hjá Norðurósi að fást við afskurðinn, sem fenginn er af frystitogurum. Hann er saltaður, síðan útvatnaður og loks unninn í marning.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar