Evrópsk stofnun gefur út bók um heilbrigðisþjónustu

Árni Torfason

Evrópsk stofnun gefur út bók um heilbrigðisþjónustu

Kaupa Í körfu

Nýtt rit um íslenska heilbrigðisþjónustu hefur verið gefið út hjá evrópskri stofnun sem hefur það hlutverk með höndum að fylgjast með heilbrigðisþjónustu og stefnumótun á því sviði í Evrópu. Í ritinu, sem er á ensku, er að finna lýsingu á íslenska heilbrigðiskerfinu og því sem þar er efst á baugi og tilgangurinn með útgáfunni er að koma á framfæri samanburðarupplýsingum vegna stefnumótunar og greiningar á heilbrigðiskerfum í Evrópu. MYNDATEXTI: Ritið kynnt: Næst á myndinni er Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir sem er höfundur ritsins, en á myndinni eru einnig Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, og Mark Danzon, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar