Ráðstefna Samsung

Ráðstefna Samsung

Kaupa Í körfu

Í VIKUNNI var haldin í Reykjavík árleg ráðstefna Evrópudeildar myndavélaframleiðandans Samsung. Hana sóttu rúmlega 60 umboðsmenn Samsung-myndavéla í Evrópu og að auki um 30 blaðamenn, ritstjórar og ljósmyndarar margra helstu ljósmyndatímarita álfunnar. Fram kom að markaðshlutur stafrænna myndavéla í Evrópu og Bandaríkjunum sé nú um helmingur myndavélamarkaðarins, en búist er við um 50% aukningu í sölu stafrænna véla árið 2004, og ætlar Samsung sér drjúgan hlutdeild í þeirri söluaukningu. Sérstaka viðurkenningu hlaut Peter Winkler frá Ungverjalandi fyrir mestu söluaukningu á síðasta ári þar í landi. MYNDATEXTI: Varaforseti Samsung, Jonghum Park, situr á vélsleðanum á Langjökli, en ráðstefnugestum þótti jöklaferðin hin besta tilbreyting. Við hlið hans er Boo Cheol Lee. Standandi eru Jake Kim, sölustjóri í Bretlandi, Sang Mok Lee, sölustjóri í Þýskalandi, og Brian Lee. Fremstur er Þorsteinn Garðarsson, sölustjóri Samsung á Íslandi, sem skipulagði ráðstefnuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar