Grunnskólinn í Borganrnesi

Grunnskólinn í Borganrnesi

Kaupa Í körfu

Nemendur í 1. bekk í Grunnskólanum fengu gefins reiðhjólahjálma nýlega eins og önnur börn á landinu sem eru fædd 1997. Kiwanis, Eimskip og Flytjandi standa sameiginlega að gjöfinni og afhentu Kiwanismenn í Borgarnesi krökkunum hjálmana. Um leið kom lögreglan í heimsókn og fræddi börnin um hjólreiðar og öryggisútbúnað. Kennd var rétt notkun á reiðhjólahjálmum og áhersla lögð á mikilvægi þess að vera alltaf með hjálm á höfðinu þegar verið er að hjóla. Voru börnin einnig beðin að minna eldri systkini og foreldra á þetta öryggisatriði. MYNDATEXTI: Alda Baldursdóttir lögreglumaður sýnir rétta notkun reiðhjólahjálma á Erlu Björk Kristjánsdóttur, nemanda í 1. bekk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar