Vorverkin í garðinum

Ásdís Ásgeirsdóttir

Vorverkin í garðinum

Kaupa Í körfu

Keflavík | Aðaltörnin hjá garðeigendum er á vorin. Þá þarf að koma görðunum í gott horf og þá verður auðveldara að halda þeim við yfir sumarið. Allir garðeigendur eru því með hugann við garðinn þessa dagana. Þeir duglegustu hafa þegar tekið til hendinni en hinir eru enn að safna kjarki og ætla bráðum út í garð. Kolbrún Sigurbergsdóttir sem býr við Hringbraut í Keflavík er í fyrrnefnda hópnum. Hún var að stinga upp blómabeð undir stóra trénu og garðálfurinn virtist ánægður með það.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar