Ungir hestamenn - Stakkaborg

Ásdís Ásgeirsdóttir

Ungir hestamenn - Stakkaborg

Kaupa Í körfu

ÍSLENSKI hesturinn er þekktur út um víða veröld og ýtir oft undir þjóðarstolt landans. Það er því ekki úr vegi að kynna æskuna fyrir hestamennsku enda sérlega vinsæl íþrótt. Krakkahestar heimsóttu börnin á Stakkaborg og buðu upp á stutta reiðtúra. Börnin tóku tækifærinu fagnandi eins og vera ber og það voru í kringum 70 börn sem settust á bak. MYNDATEXTI: Þessi ungi maður tók leiðbeiningum vel og virtist öllu vanur enda með hjálm á höfði og í tilheyrandi klæðnaði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar