Hrafn Jökulsson

Ragnar Axelsson

Hrafn Jökulsson

Kaupa Í körfu

Skákmaraþon Hróksins Í DAG klukkan 10 sest Hrafn Jökulsson, formaður skákfélagsins Hróksins, að tafli í Smáralind. Takmark hans er að tefla stanslaust í 30 klukkustundir gegn allt að 200 áskorendum. Hrafn mun hafa hvítt í öllum skákunum og tefla við einn í einu og verður meðallengd hverrar skákar um tíu mínútur. Á heimasíðu Hróksins verður hægt að fylgjast með skákunum í beinni útsendingu en Síminn annast beina útsendingu af sviðinu. Í dag mun Hrókurinn einnig leggja fram verkefnaskrá sína fyrir næstu 12 mánuði. MYNDATEXTI: Í gær kenndi Hrafn ungum krökkum á Barnaspítala Hringsins skák. Hann mun eflaust einnig taka einhverja andstæðinga sína í kennslustund í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar