Unnið við nýjan viðlegukant í Reykjavíkurhöfn

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Unnið við nýjan viðlegukant í Reykjavíkurhöfn

Kaupa Í körfu

UM ÞESSAR mundir er unnið að stækkun Norðurbakka við gömlu höfnina í Reykjavík. Að sögn Jóns Þorvaldssonar, forstöðumanns tæknideildar Reykjavíkurhafnar, er hér um hluta af áætlun um endurbætur á gömlu höfninni að ræða. "Þarna er byrjuð bakkagerð, og er unnið við 160 metra áfanga," sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Jón segir ástæður þessara framkvæmda fyrst og fremst að finna í breytingum á Austurhöfninni, þar sem áætlað er að tónlistar- og ráðstefnuhús muni rísa. Segir Jón að með þessum framkvæmdum og öðrum sé unnið að uppbyggingu Vesturhafnarinnar sem framtíðarsvæðis sjávarútvegsstarfsemi í Reykjavíkurhöfn. "Þessi framkvæmd er fyrsti áfangi í þessum aðgerðum. Þessi hafnarbakki er fyrst og fremst ætlaður fyrir togara Granda, sem þarna fá nútímalega aðstöðu fyrir skipaflota sinn," segir Jón. Gert er ráð fyrir að skip geti lagst að nýja bakkanum um næstu áramót.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar