Páll Ásgeir Ásgeirsson

Ragnar Axelsson

Páll Ásgeir Ásgeirsson

Kaupa Í körfu

Hálendishandbókin er komin út í nýrri og endurskoðaðri útgáfu KOMIN er út ný útgáfa Hálendishandbókarinnar eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson en hún hefur að geyma myndskreyttar lýsingar með kortum á fjölmörgum leiðum um hálendið og aðrar óbyggðir. Leiðarlýsingar eru skrifaðar út frá hálendisvegum og slóðum en höfundur bendir jafnframt á skoðunarverða staði sem lesendur eru hvattir til að ganga að og skoða og má segja að fjallað sé um allt í senn, ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaði. MYNDATEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson hefur farið víða á Land Rover-jeppa sínum en hann hefur nýlega skrifað nýja útgáfu Hálendishandbókarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar