Háskóli Íslands - HÍ - ársfundur fræðasetra

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Háskóli Íslands - HÍ - ársfundur fræðasetra

Kaupa Í körfu

Ársfundur Háskóla Íslands ALLT bendir til þess að Háskóli Íslands fái ekki greitt fyrir um 350 virka nemendur í ár til viðbótar við þá 602 virku nemendur sem skólinn hefur ekki fengið greitt fyrir árin 2001-2003. Með "virkum nemanda" er átt við nemanda í fullu 30 eininga námi. Þetta kom fram í ræðu Ingjaldar Hannibalssonar, formanns fjármálanefndar Háskólaráðs, á ársfundi Háskóla Íslands. Ingjaldur taldi til ýmsar aðrar ástæður fyrir fjárhagsvanda skólans, m.a að meðalfjöldi í hóp væri undir 30 nemendum, launastika væri of lág, rannsóknarfjárveiting væri ekki árangurstengd og að ekkert tillit hafi verið tekið til óska um breytingar á flokkun fræðigreina. MYNDATEXTI: Fjármál Háskóla Íslands voru ofarlega á baugi á ársfundi skólans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar