Go Form

©Sverrir Vilhelmsson

Go Form

Kaupa Í körfu

*HÖNNUN Litli borðstofustóllinn eftir Svein Kjarval, sem nýlega gekk í endurnýjun lífdaga, var útgangspunktur þeirra Guðrúnar Margrétar Ólafsdóttur og Oddgeirs Þórðarsonar þegar þau hönnuðu borðstofuborðið sem er með nýjustu hugarsmíðum þeirra. Form borðsins og stólsins kallast á en húsgögnin standa líka hvort fyrir sínu. Innanhússarkitektarnir Guðrún og Oddgeir hanna undir merkjum fyrirtækis síns, Go Form, og fengu góð viðbrögð við hönnun sinni á norrænni húsgagnasýningu sem haldin var í Bella Center í Kaupmannahöfn 12.-16. maí sl. en þar sýndu hönnuðir og fyrirtæki frá Norðurlöndunum húsgögn og húsbúnað. MYNDATEXTI: Frumgerð: Nýr stóll eftir Oddgeir og Guðrúnu Margréti. Einföld hönnun á léttum aukastól.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar