Hjólabátur

Jónas Erlendsson

Hjólabátur

Kaupa Í körfu

ÁFORMAÐ er að bjóða upp á siglingar í hjólabáti við Látrabjarg um næstu helgi ef veður leyfir. Árni Johnsen, sem liðsinnt hefur Vesturbyggð í átaki sveitarfélagsins í ferðaþjónustumálum, segir að tilgangurinn sé að gefa fólki kost á að skoða það undur sem Látrabjarg sé, séð frá sjó. Áætlað er að siglingin taki 1-2 tíma. Hjólabáturinn sem um ræðir er bátur Þorsteins Gunnarssonar á Vatnsskarðshólum sem notaður hefur verið í siglingar með ferðamenn við Dyrahólaey. MYNDATEXTI: Hjólabátnum var komið fyrir á stórum flutningavagni við Vatnsskarðshóla í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar